Snjóþungi á Sigló | Tunnuverksmiðjubruni | Eldur í tunnuverksmiðju | Ferðasaga myndanna | Fréttaskýring | Erlingur Jónson | Tunuverksm.viðtöl | Þrjár fréttir frá Sigló | Áramótin 63/64 | Brotin rúða | Siglufjarðarskarð fært | Skotkeppni | Verkefnasýning | Skemmtileg skíðakeppni | Skarðsmótið 1964 | Göngukeppni | Draugur strandar | Nornen sækir Draug | Sjávarborg | Fyrsta síldarsöltunin | Sigvald tók niðri | Siglfirðingur SI 150 | Ufsinn í hættu | Falleg Síld á Sigló | Svipmyndir - Sigluf. | Lauginni lokað | Í snjó í Siglufjarðarskarði | Síld í september | Þrjár fréttir | Borgarísjaki | Fjórar fréttir

>>>>>>>>>>> Lauginni lokað

 

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Föstudagur 14. september 1964. Ljósmynd og texti: Steingrímur
Lauginni lokað og Siglfirðingar fóru í höfnina.

SIGLUFIRÐI 4. ágúst. - Siglfirðingar hafa ekki til þessa getað stært sig af því að eiga sundgarpa enda varla við því að búast, þar sem sundlaugarlaust var hér um árabil. En nú eiga Siglfirðingar eina af glæsilegustu sundhöllum landsins, sem þó er lokuð almenningi meiri hluta af ári hverju. Og nú 31. júlí var henni lokað, öllum þeim sem sótt; hafa, til sárra leiðinda. En það eru ekki allir sem hætta að synda, þó sundhöllinni sé lokað. Það sanna þær ljósmyndir sem hér fylgja, en þær eru teknar i rigningu og 5-8 stiga hita, um daginn, er þrír ungir Siglfirðingar fengu sér bað í sjónum innan um  þau fáu   skip, sem voru í höfninni.

 

 

Einn kappinn stingur sér til sunds, --- vel búinn til fótanna

Tveir af köppunum á sundi í Siglufjarðarhöfn

Piltarnir syntu nokkur hundruð metra, stungu sér nokkrum sinnum og virtist kuldinn ekkert bíta á þá.Sjórinn er að vísu talinn hollur til sundiðkana, - en það er varla nema  hraustu fólki fært að synda við þessi skilyrði. - Þess vegna ætti það að vera siðferðisleg skylda opinberra aðila að gera allt sem hægt er, til að hafa eina af glæsilegustu sundhöllum landsins opna almenningi, einhvern hluta úr degi allt árið um kring, því enginn íþrótt er hollari en einmitt sundið.-- S. K.