Snjóþungi á Sigló | Tunnuverksmiðjubruni | Eldur í tunnuverksmiðju | Ferðasaga myndanna | Fréttaskýring | Erlingur Jónson | Tunuverksm.viðtöl | Þrjár fréttir frá Sigló | Áramótin 63/64 | Brotin rúða | Siglufjarðarskarð fært | Skotkeppni | Verkefnasýning | Skemmtileg skíðakeppni | Skarðsmótið 1964 | Göngukeppni | Draugur strandar | Nornen sækir Draug | Sjávarborg | Fyrsta síldarsöltunin | Sigvald tók niðri | Siglfirðingur SI 150 | Ufsinn í hættu | Falleg Síld á Sigló | Svipmyndir - Sigluf. | Lauginni lokað | Í snjó í Siglufjarðarskarði | Síld í september | Þrjár fréttir | Borgarísjaki | Fjórar fréttir

>>>>>>>>>>> Skemmtileg skíðakeppni

 

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fimmtudagur 21. (?) maí 1964 Ljósmyndir og texti: Steingrímur (myndir teknar 19 apríl 64)

Fleiri myndir frá þessari uppákomu, ef  þú smellir á hnappinn "fleiri myndir"

Skemmtileg skíðakeppni á Siglufirði. 

FYRIR nokkru [19. apríl] var háð hér allnýstárleg skíðakeppni, - nokkurskonar firmakeppni, en

Nokkrir keppendur bíða spenntir eftir að þeirra maður komi, til að geta þá skjótt tekið við

frábrugðin venjulegri firmakeppni að því leiti að venjulega eru þaulvanir skíðagarpar, sem keppa og er þá dregið um hver á að keppa fyrir hvert firma. En nú lagði hvert firma sjálft til kappana, og varð viðkomandi keppandi að ver atarfsmaður fyrirtækisins.

Úr þessu varð hörku spennandi boðganga 4x2 km., sem þátt tóku alls 13 sveitir frá 12 fyrirtækjum. Í þessari göngukeppni var sett það skilyrði að enginn af þeim sem kepptu á síðasta landsmóti mátti taka þátt í boðgöngunni. Og því var þarna all fjölbreyttur hópur, tildæmis forstjóri Kjötbúðar Siglufjarðar Sigurður Þorsteinsson,

Elsti þátttakandinn Erlendur Þórarinsson, rúmlega fimmtugur kemur að marki. Hann keppti fyrir Vatnsveituna og gekk á betri tíma en margir hinna yngri 10,46 mínútur. Þórhallur Þorláksson fyrir Hljómsveitina Gautar sést koma rétt á eftir Erlendi.

Kaupfélagsstjórinn; Skarphéðinn Guðmundsson, múrarameistarinn; Baldur Ólafsson, rafvirkjameistarinn Sverrir Sveinsson, ofl. ofl., trésmiðir, verkamenn, rafvirkjar, múrarar, skrifstofumenn, verslunarmenn, símritarar, símvirki, vélstjórar, vélvirkjar, skipstjórar og hin þekkta hljómsveit "Gautar" 

Keppnin var öll hin fjörugasta og höfðu allir ánægju af, bæði keppendur og áhorfendur sem voru mjög margir, sennilega ekki langt frá  að um helmingur bæjarbúa hafi verið þarna samankominn í glampandi sólskini og logni.  Nægur snjór var og öll skilyrði hin ákjósanlegustu.

A-sveit Trésmíðaverkstæðisins við Grundargötu 1, bar sigur úr bítum og kom það fáum á óvart, því Skúli Jónasson, trésmíðameistari, virðist ekki ráða til sín á verkstæði sitt aðra en skíðagarpa, en hann sendi út tvær sveitir fram á víglínuna og hefði getað sent fleiri, ef reglurnar hefðu ekki komið í veg fyrir það, en Þórhallur Sveinsson.

Íslandsmeistari í göngur 17-19 ára og Guðmundur Sveinsson sem var þriðji í 30 km. göngu á síðasta Íslandsmóti eru báðir að læra hjá Skúla. Einnig átti "Skúla" maður, Hreinn Júlíusson besta tímann, eða 8,50 mínútur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sveitin sigursæla t.f.v. Benedikt Sigurjónsson, Hreinn Júlíusson, Skúli Jónasson (meistarinn), Sigurður Helgason og Jón Sigurðsson